Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á dagskrá á X977 í dag milli 12 og 14 eins og venjan er á laugardögum. Í þætti dagsins er fimmta umferðin í Bestu deildinni aðalmálið.
Smelltu hér til að hlusta á X977 í beinni
Smelltu hér til að hlusta á X977 í beinni
Umferðin framundan í Bestu deildinni er skoðuð og sérstaklega hitað upp fyrir toppslag Vals og KR. Rætt er við Aron Sigurðarson, leikmann KR, sem hefur verið valinn leikmaður mánaðarins fyrir aprílmánuð.
Glugganum hefur verið lokað og stærstu kaupin eru skoðuð og dæmd. Lengjudeildin og Meistaradeildin koma einnig við sögu.
Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.
Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.
Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna




