Vinicius Jr orðaður við Man City - Bayern vill Gordon - Arsenal, Liverpool og Barcelona hafa áhuga á Barcola
   lau 02. maí 2026 11:40
Ívan Guðjón Baldursson
Líklegt að Newcastle selji Gordon í sumar
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Taldar eru miklar líkur á því að Newcastle United samþykki að selja kantmanninn Anthony Gordon í sumar.

Stórveldi FC Bayern og Liverpool hafa mikinn áhuga á kantmanninum sem er sagður vera falur fyrir um 75 milljónir punda.

Þýskalandsmeistararnir eru sagðir vera í bílstjórasætinu í kappinu um Gordon en Liverpool vantar kantmenn í hópinn sinn og hefur áhuga.

Fleiri félög úr ensku úrvalsdeildinni gætu bæst við kapphlaupið þar sem Arsenal og Chelsea hafa einnig verið nefnd til sögunnar af fjölmiðlum á Englandi.

Gordon er 25 ára og hefur skorað 17 mörk og gefið 5 stoðsendingar í 46 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu. Hann er með fjögur ár eftir af samningi.

Hann hefur verið einn af bestu leikmönnum Newcastle síðustu ár en félagið þarf á sölunni að halda til að standast fjármálakröfur úrvalsdeildarinnar og fjármagna kaup á leikmönnum í aðrar stöður.

Newcastle hefur ekki átt góðu gengi að fagna á tímabilinu og siglir lygnan sjó í neðri hluta úrvalsdeildarinnar eftir fjóra tapleiki í röð, með 42 stig eftir 34 umferðir.

   20.04.2026 20:10
Newcastle setur verðmiða á Gordon - Bayern hefur áhuga

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 35 23 7 5 67 26 +41 76
2 Man City 34 21 8 5 69 32 +37 71
3 Man Utd 35 18 10 7 63 48 +15 64
4 Liverpool 35 17 7 11 59 47 +12 58
5 Aston Villa 35 17 7 11 48 44 +4 58
6 Bournemouth 35 12 16 7 55 52 +3 52
7 Brentford 35 14 9 12 52 46 +6 51
8 Brighton 35 13 11 11 49 42 +7 50
9 Chelsea 35 13 9 13 54 48 +6 48
10 Everton 35 13 9 13 44 44 0 48
11 Fulham 35 14 6 15 44 49 -5 48
12 Sunderland 35 12 11 12 37 46 -9 47
13 Newcastle 35 13 6 16 49 51 -2 45
14 Leeds 35 10 13 12 47 52 -5 43
15 Crystal Palace 34 11 10 13 36 42 -6 43
16 Nott. Forest 35 11 9 15 44 46 -2 42
17 Tottenham 35 9 10 16 45 54 -9 37
18 West Ham 35 9 9 17 42 61 -19 36
19 Burnley 35 4 8 23 35 71 -36 20
20 Wolves 35 3 9 23 25 63 -38 18
Slapp
banner
banner
banner
banner