Þrír leikir fóru fram í 2. umferð Lengjudeildarinnar klukkan 19:15 í kvöld. ÍR heimsótti Þrótt í Laugardalinn. ÍR vann 7-4 stórsigur á Aftureldingu í fyrstu umferð og Þróttur lagði Njarðvík 2-0.
Það dró til tíðinda á 18. mínútu þegar Ágúst Unnar Kristinsson var rekinn af velli fyrir að brjóta á Aroni Snæ Ingasyni þegar hann var að sleppa í gegn. ÍR-ingar voru því orðnir manni færri.
Þróttarar náðu forystunni eftir hálftíma leik þegar Kristján Atli Marteinsson skallaði boltann í eigið net. Sjö mínútum síðar voru heimamenn komnir með þriggja marka forystu eftir mörk frá Erni Braga Hinrikssyni og Vilhjálmi Kaldal Sigurðssyni.
ÍR-ingar náðu að minnka muninn snemma í seinni hálfleik þegar Emil Nói Sigurhjartarson skoraði laglegt mark beint úr aukaspyrnu en nær komust þeir ekki.
Þróttur er því með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar eins og HK sem lagði Ægi í Kórnum.
Þorsteinn Aron Antonsson kom HK yfir eftir langt innkast og Dominic Radic bætti öðru markinu við snemma í seinni hálfleik. Harley Willard náði að klóra í bakkann undir lokin en 2-1 sigur HK staðreynd.
Dagur Ingi Hammer Gunnarsson var hetja Leiknismanna sem unnu Gróttu á útivelli.
Dagur kom Leikni yfir þegar hann skoraði af stuttu færi eftir sendingu frá Rúrik Gunnarssyni. Hann bætti öðru markinu við strax í upphafi seinni hálfeliks.
Guðmundur Rafn Ingason, markvörður Gróttu, átti hrikalega sendingu beint á Dag Inga sem skoraði af öryggi. Elmar Freyr Hauksson minnkaði muninn strax í kjölfarið með góðu skoti.
Björgvin Brimi Andrésson var nálægt því að jafna metin fyrir Gróttu þegar um tuttugu mínútur voru til loka venjulegs leiktíma en skotið rétt framhjá. Þá komst Björgvin Stefánsson í gott færi í blálokin en skaut yfir.
Grótta 1 - 2 Leiknir R.
0-1 Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('40 )
0-2 Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('48 )
1-2 Elmar Freyr Hauksson ('51 )
Lestu um leikinn
Þróttur R. 3 - 1 ÍR
1-0 Kristján Atli Marteinsson ('30 , sjálfsmark)
2-0 Örn Bragi Hinriksson ('33 )
3-0 Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson ('37 )
3-1 Emil Nói Sigurhjartarson ('49 )
Rautt spjald: Ágúst Unnar Kristinsson, ÍR ('18) Lestu um leikinn
HK 2 - 1 Ægir
1-0 Þorsteinn Aron Antonsson ('14 )
2-0 Dominik Radic ('51 )
2-1 Harley Bryn Willard ('85 )
Lestu um leikinn
Lengjudeild karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. HK | 2 | 2 | 0 | 0 | 6 - 2 | +4 | 6 |
| 2. Þróttur R. | 2 | 2 | 0 | 0 | 5 - 1 | +4 | 6 |
| 3. Leiknir R. | 2 | 1 | 1 | 0 | 3 - 2 | +1 | 4 |
| 4. Fylkir | 1 | 1 | 0 | 0 | 3 - 0 | +3 | 3 |
| 5. ÍR | 2 | 1 | 0 | 1 | 8 - 7 | +1 | 3 |
| 6. Grindavík | 2 | 0 | 2 | 0 | 1 - 1 | 0 | 2 |
| 7. Völsungur | 2 | 0 | 2 | 0 | 1 - 1 | 0 | 2 |
| 8. Vestri | 1 | 0 | 1 | 0 | 1 - 1 | 0 | 1 |
| 9. Njarðvík | 2 | 0 | 1 | 1 | 0 - 2 | -2 | 1 |
| 10. Afturelding | 2 | 0 | 1 | 1 | 4 - 7 | -3 | 1 |
| 11. Grótta | 2 | 0 | 0 | 2 | 2 - 6 | -4 | 0 |
| 12. Ægir | 2 | 0 | 0 | 2 | 1 - 5 | -4 | 0 |



