Sheffield Wednesday er búið að ná samkomulagi við David Storch sem er að kaupa félagið.
Wednesday hefur verið í miklum fjárhagsörðugleikum og hríðféll úr ensku Championship deildinni. Þar er liðið með -3 stig fyrir lokaumferðina, eftir að hafa fengið dæmd 18 refsistig. Sheffield átti aldrei möguleika á að halda sér uppi í deildinni, með eða án refsistiga.
Storch fer fyrir kaupum Arise Capital Partners samsteypunnar á Sheffield Wednesday og er útlitið jákvætt.
Sky Sports greinir frá því að ef allt gengur vel þá gæti Sheffield Wednesday verið selt um helgina. Liðið mun leika í League One deildinni á næstu leiktíð.




