Benoný Breki Andrésson er nýlega búinn að jafna sig eftir meiðsli sem héldu honum frá keppni í þrjá mánuði.
Hann kom inn af bekknum hjá Stockport County í dag og skoraði síðasta markið til að innsigla sigur á útivelli. Benoný skoraði eftir skyndisókn þar sem hann rakti boltann upp hálfan völlinn áður en hann skoraði.
Stockport heimsótti Barnsley í lokaumferð deildartímabilsins í League One og skóp 1-3 sigur sem tryggir liðinu 3. sæti deildarinnar.
Það þýðir að Stockport fer í umspil um sæti í Championship deildinni. Benoný og félagar spila við Stevenage í undanúrslitum og þurfa sigur þar til að komast í úrslitaleikinn, sem verður annað hvort gegn Bolton eða Bradford.
Jason Daði Svanþórsson var þá fjarverandi er Grimsby Town gerði jafntefli við Tranmere í League Two. Grimsby tryggði sér þannig þátttökurétt í umspili um sæti í League One.
Í Skotlandi var Eyþór Martin Björgólfsson fjarverandi vegna meiðsla í tapi Motherwell gegn Falkirk. Motherwell er í góðri stöðu í baráttunni um sæti í forkeppni Sambandsdeildarinnar þrátt fyrir tapið.
Í gríska boltanum lék Davíð Kristján Ólafsson í rúma klukkustund er botnlið AEL Larissa gerði jafntefli við Panserraikos. Larissa er þremur stigum frá öruggu sæti þegar það eru fjórar umferðir eftir af deildartímabilinu.
Í Suður-Kóreu lék Hólmbert Aron Friðjónsson seinni hálfleikinn í vandræðalegu tapi hjá Gwangju FC á heimavelli gegn Daejeon, lokatölur 0-5. Gwangju er aðeins komið með 6 stig eftir 11 umferðir.
Að lokum varði Lúkas Jóhannes Blöndal Petersson mark varaliðsins hjá Hoffenheim í þriðju efstu deild í Þýskalandi. Lúkas og félagar töpuðu gegn Regensburg og eru með 40 stig eftir 36 umferðir.
Barnsley 1 - 3 Stockport
0-1 A. Sidibeh ('23)
1-1 A. Phillips ('53)
1-2 Oliver Norwood ('71, víti)
1-3 Benoný Breki Andrésson ('99)
Tranmere 1 - 1 Grimsby
Falkirk 1 - 0 Motherwell
Panserraikos 1 - 1 AEL Larissa
Gwangju 0 - 5 Daejeon
Regensburg 2 - 1 Hoffenheim II
Sandur 4 - 0 TB Tvoroyri
Kvik 1 - 2 Spjelkavik




