Aston Villa fylgist með Mbaye - Coventry og Leeds berjast um Openda - Gordon á leið til Bayern - Vilja Trafford sem arftaka Martínez
   lau 02. maí 2026 16:38
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjudeild kvenna: Níu mörk á Seltjarnarnesi - HK vann
Kvenaboltinn
Mynd: Haukar
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Tveimur fyrstu leikjum dagsins er lokið í Lengjudeild kvenna þar sem Grótta og Haukar áttust við í ótrúlegum fótboltaleik.

Gestirnir úr Hafnarfirði fóru á kostum í fyrri hálfleik og leiddu með fjórum mörkum þegar flautað var til leikhlés. Aldís Kara Lúðvíksdóttir var atkvæðamest með tvennu.

Staðan var því 0-4 í leikhlé og gerði Ísold Hallfríðar Þórisdóttir fimmta markið á 61. mínútu. Þá vöknuðu heimakonur á Seltjarnarnesi til lífsins og komust nálægt því að eiga ótrúlega endurkomu.

Alexandria Madden setti tvennu á sjö mínútna kafla áður en Lovísa Davíðsdóttir Scheving og Thelma Björg Gunnarsdóttir skoruðu sitthvort markið. Allt í einu var staðan orðin 4-5 eftir fjögur mörk Gróttu á 16 mínútna kafla.

Jöfnunarmarkið leit þó aldrei dagsins ljós, svo lokatölur urðu 4-5 fyrir Hauka.

Liðin áttust við í fyrstu umferð á nýju tímabili í Lengjudeildinni.

Á sama tíma vann HK sannfærandi sigur á ÍA þar sem Cally Queen Togiai skoraði tvennu á fyrstu sjö mínútum leiksins.

Erna Björt Elíasdóttir minnkaði muninn úr vítaspyrnu skömmu áður en Henríetta Ágústsdóttir endurnýjaði forystu heimakvenna.

Öll mörkin fjögur komu á fyrstu 32 mínútum leiksins og urðu lokatölur 3-1 fyrir HK.

Grótta 4 - 5 Haukar
0-1 Rakel Lilja Hjaltadóttir ('14 )
0-2 Aldís Kara Lúðvíksdóttir ('28 )
0-3 Halla Þórdís Svansdóttir ('32, vítaspyrna)
0-4 Aldís Kara Lúðvíksdóttir ('35 )
0-5 Ísold Hallfríðar Þórisdóttir ('61 )
1-5 Alexandria Madden ('70 )
2-5 Alexandria Madden ('77 )
3-5 Lovísa Davíðsdóttir Scheving ('81 )
4-5 Thelma Björg Gunnarsdóttir ('86 )

HK 3 - 1 ÍA
1-0 Cally Queen Togiai ('3 )
2-0 Cally Queen Togiai ('7 )
2-1 Erna Björt Elíasdóttir ('29, víti)
3-1 Henríetta Ágústsdóttir ('32 )
Slapp
banner
banner