Aston Villa fylgist með Mbaye - Coventry og Leeds berjast um Openda - Gordon á leið til Bayern - Vilja Trafford sem arftaka Martínez
   lau 02. maí 2026 14:24
Ívan Guðjón Baldursson
Sandra María skoraði annan leikinn í röð - Linda Líf á skotskónum
Kvenaboltinn
Mynd: Köln
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Heimasíða Álasunds
Sandra María Jessen var á sínum stað í byrjunarliði Köln í dag og skoraði síðasta markið til að innsigla 3-0 sigur á heimavelli gegn Werder Bremen í efstu deild í Þýskalandi.

Köln siglir lygnan sjó um miðja deild, með 31 stig úr 24 umferðum. Sandra er búin að spila alla deildarleiki liðsins á tímabilinu og er komin með 12 mörk og 2 stoðsendingar.

Í sænska boltanum var Linda Líf Boama í byrjunarliði Kristianstad ásamt Alexöndru Jóhannsdóttir en þeim tókst ekki að koma í veg fyrir afar óvænt tap gegn Brommapojkarna.

Linda Líf skoraði fyrsta mark leiksins strax á þriðju mínútu en andstæðingarnir svöruðu með þremur mörkum svo staðan var 3-1 í leikhlé. Elísa Lana Sigurjónsdóttir kom inn af bekknum í síðari hálfleik og urðu lokatölur 3-2. Linda hefur farið vel af stað í sænska boltanum og er komin með fjögur mörk og tvær stoðsendingar eftir fjóra fyrstu leikina í efstu deild.

Kristianstad leikur undir stjórn Nik Chamberlain, fyrrum þjálfara Breiðabliks, og var með fullt hús stiga fyrir tapið í dag. Liðið er með 9 stig eftir 4 fyrstu umferðir tímabilsins en þetta var fyrsti sigur Brommapojkarna á nýju deildartímabili.

Eyrún Embla Hjartardóttir var þá í byrjunarliði B-liðsins hjá Häcken sem tapaði á heimavelli gegn Alingsäs í næstefstu deild. Häcken situr þar í neðsta sæti án stiga eftir fjórar umferðir.

Á sama tíma mættust Amanda Jacobsen Andradóttir og Daníela Dögg Guðnadóttir í efstu deild í Noregi. Þar höfðu Daníela og stöllur betur er Aalesund lagði Molde á útivelli í fjörugum fimm marka leik.

Molde er aðeins með fjögur stig eftir fyrstu sex umferðir tímabilsins á meðan Álasund er komið með tíu stig eftir fimm umferðir.

Að lokum voru Íslendingalið sem mættu til leiks í danska boltanum. Þar er FC Kaupmannahöfn í góðri stöðu í fallbaráttu efstu deildar eftir markalaust jafntefli við OB, á meðan Esbjerg er svo gott sem fallið úr næstefstu deild.

Köln 3 - 0 Werder Bremen
1-0 L. Andrade ('19)
2-0 A. Stolze ('36)
3-0 Sandra María Jessen ('54)

Brommapojkarna 3 - 2 Kristianstad
0-1 Linda Líf Boama ('3)
1-1 J. Svedberg ('5)
2-1 I. Bengtsson ('14)
3-1 A. Engman ('32)
3-2 M. De Jongh ('80)

Rosengard 0 - 1 Malmo

Hacken B 0 - 1 Alingsas

Molde 2 - 3 Aalesund

Roa 0 - 1 Rosenborg

FCK 0 - 0 Odense

Aalborg 1 - 1 B.93

Esbjerg 2 - 3 Viborg

Slapp
banner
banner
banner