Þór er að spila Akureyrarslaginn við KA þessa stundina og er staðan markalaus sem stendur, en það eru 13 mínútur í uppgefinn uppbótartíma vegna tafa í fyrri hálfleik.
Lestu um leikinn: Þór 0 - 1 KA
Fyrri hálfleikurinn tók talsvert lengri tíma en hann átti að gera vegna meiðslavandræða í báðum liðum. Strax á 2. mínútu leiksins virtist Isaac Atanga fótbrotna eftir samskipti við Kára Gautason.
Isaac braut á Kára með því að traðka á honum en missteig sig mjög illa í kjölfarið og þurfti að vera borinn af velli.
„Þetta lítur illa út á myndum og ég óttast að Isaac sé hreinlega fótbrotinn. Ömurleg byrjun á þessum leik," segir meðal annars í textalýsingu frá leiknum.
„Stumra yfir honum á vellinum og huga að því að koma honum á börur. Get ekki ímyndað mér annað en kallað hafi verið eftir sjúkrabíl."
Isaac er leikmaður Þórs en Rodri í liði KA þurfti svo að vera borinn meiddur af velli síðar í hálfleiknum sem tafði leikinn enn frekar. Af þeim ástæðum voru gefnar 13 mínútur í uppbótartíma.



