Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
banner
   fös 01. maí 2026 20:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Leeds fór langt með að gulltryggja sætið sitt
Mynd: EPA
Leeds 3 - 1 Burnley
1-0 Anton Stach ('8 )
2-0 Noah Okafor ('52 )
3-0 Dominic Calvert-Lewin ('56 )
3-1 Loum Tchaouna ('71 )

Leeds fór langt með að gulltryggja áframhaldandi veru í úrvalsdeildinnii þegar liðið vann Burnley á heimavelli í kvöld.

Burnley féll formlega úr deildinni þegar liðið tapaði gegn Man City í síðustu umferð. Leeds er níu stigum frá fallsæti þegar þrjár umferðir eru eftir.

Leeds náði forystunni snemma leiks þegar Anton Stach skoraði með góðu skoti fyrir utan teiginn. Það var eina markið í fyrri hálfleik en Noah Okafor bætti öðru markinu við eftir laglegan undirbúning Dominic Calvert-Lewin og Jayden Bogle.

Calvert-Lewin átti hælsendingu á Bogle og hann sendi boltann fyrir og Okafor mætti og skoraði.

Calvert-Lewin gerði svo gott sem útum leikinn stuttu síðar. Burnley beit frá sér í kjölfarið og Lucas Pires skoraði mark sem var dæmt af vegna rangstöðu en stuttu síðar klóraði Loum Tchaouna í bakkann en nær komust þeir ekki.

Leeds er í 14. sæti með 43 stig, níu stigum á undan Tottenham sem á leik til góða. Leeds heimsækir Tottenham í næstu umferð og gæti endanlega tryggt sætið sitt í deildinni eftir þann leik. Burnley er í 19. sæti með 20 stig og er þegar fallið eins og fyrr segir.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 22 7 5 64 26 +38 73
2 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
3 Man Utd 34 17 10 7 60 46 +14 61
4 Liverpool 34 17 7 10 57 44 +13 58
5 Aston Villa 34 17 7 10 47 42 +5 58
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
8 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
9 Brentford 34 13 9 12 49 46 +3 48
10 Fulham 34 14 6 14 44 46 -2 48
11 Everton 34 13 8 13 41 41 0 47
12 Sunderland 34 12 10 12 36 45 -9 46
13 Crystal Palace 33 11 10 12 36 39 -3 43
14 Leeds 35 10 13 12 47 52 -5 43
15 Newcastle 34 12 6 16 46 50 -4 42
16 Nott. Forest 34 10 9 15 41 45 -4 39
17 West Ham 34 9 9 16 42 58 -16 36
18 Tottenham 34 8 10 16 43 53 -10 34
19 Burnley 35 4 8 23 35 71 -36 20
20 Wolves 34 3 8 23 24 62 -38 17
Slapp
banner
banner