Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
   lau 02. maí 2026 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Frábærar fréttir fyrir Chelsea
Mynd: EPA
Það eru frábærar fréttir úr herbúðum Chelsea að Reece James og Levi Colwill séu byrjaðir að æfa aftur eftir meiðsli.

Colwill hefur verið frá allt tímabilið en James hefur verið frá síðan um miðjan mars. Hann hefur komið við sögu í 36 leikjum í öllum keppnum.

„Colwill hefur verið lengi frá, James komst á gott skrið en meiddist aftur svo við viljum ekki þrýsta á hann," sagði Calum McFarlane, bráðabirgðastjóri Chelsea.

Chelsea mætir Nottingham Forest á mánudaginn en McFarlane sagði að þeir gætu mögulega tekið þátt í leiknum.
Slapp
banner
banner
banner