Aston Villa fylgist með Mbaye - Coventry og Leeds berjast um Openda - Gordon á leið til Bayern - Vilja Trafford sem arftaka Martínez
banner
   lau 02. maí 2026 12:20
Ívan Guðjón Baldursson
Býst við að Modric skrifi undir
Mynd: EPA
Igli Tare, yfirmaður fótboltamála hjá AC Milan, býst við því að króatíski miðjumaðurinn Luka Modric skrifi undir framlengingu á samningi sínum við félagið.

Modric hefur átt frábært tímabil í ítölsku deildinni þar sem hann var fljótur að festa sig í sessi í byrjunarliði Milan eftir að hafa komið á frjálsri sölu síðasta sumar.

Modric er 40 ára gamall og hefur komið með beinum hætti að 5 mörkum í 33 deildarleikjum á tímabilinu. Hann hefur hjálpað Milan að endurheimta meistaradeildarsæti eftir að liðið endaði óvænt í 8. sæti í fyrra.

Milan situr í þriðja sæti í Serie A þegar fjórar umferðir eru eftir af tímabilinu og er svo gott sem öruggt með þátttöku í deildarkeppni Meistaradeildarinnar næsta haust.

„Ég býst við því að Luka Modric skrifi undir nýjan samning og verði með okkur í annað ár," segir Tare.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner
banner