Lyon 3 - 1 Arsenal (4-3 samanlagt)
1-0 Wendie Renard ('21, víti)
2-0 Kadidiatou Diani ('36)
2-1 Alessia Russo ('76)
3-1 Jule Brand ('89)
1-0 Wendie Renard ('21, víti)
2-0 Kadidiatou Diani ('36)
2-1 Alessia Russo ('76)
3-1 Jule Brand ('89)
Lyon er búið að tryggja sér þátttöku í úrslitaleik Meistaradeildarinnar eftir frábæran sigur á heimavelli gegn ríkjandi Evrópumeisturum Arsenal.
Lyon tapaði fyrri leiknum 2-1 í London en komst í tveggja marka forystu í fyrri hálfleik á heimavelli. Wendie Renard skoraði eftir vítaspyrnu áður en Kadidiatou Diani tvöfaldaði forystuna.
Lyon var sterkara liðið í fyrri hálfleik og var staðan 2-0 í leikhlé, en seinni hálfleikurinn var jafnari þar sem Alessia Russo tókst að minnka muninn fyrir gestina á lokakaflanum.
Þegar leikurinn stefndi í framlengingu tókst Jule Brand að eiga lokaorðið með sigurmarki á 89. mínútu. Lokatölur 3-1 fyrir Lyon á heimavelli og 4-3 samanlagt.
Lyon mætir annað hvort Bayern München eða Barcelona í úrslitaleiknum.



