Birkir Már Sævarsson, leikmaður Aftureldingar, náði stórum áfanga í kvöld þegar liðið gerði markalaust jafntefli gegn Völsungi á heimavelli í Lengjudeildinni.
Þessi 41 árs gamli leikmaður gekk til liðs við Aftureldingu fyrir tímabilið en hann upplifir drauminn og spilar með bróður sínum, Aroni Elí Sævarssyni, fyrirliða Aftureldingar.
Þessi 41 árs gamli leikmaður gekk til liðs við Aftureldingu fyrir tímabilið en hann upplifir drauminn og spilar með bróður sínum, Aroni Elí Sævarssyni, fyrirliða Aftureldingar.
Víðir Sigurðsson vekur athygli á því á Facebook að Birkir Már hafi verið að spila sinn 500. deildarleik á ferlinum en þetta er 24. tímabilið hans.
Birkir spilaði 224 deildaleiki fyrir Val og 168 leiki í norsku úrvalsdeildinni með Brann og síðan þrjú ár með Hammarby í sænsku deildinni þar sem hann lék 84 leiki. Þá spilaði hann 22 leiki með Nacka í sænsku D-deildinni í fyrra.
Hann er sjötti Íslendingurinn til að ná þessum áfanga en hann þarf að spila alla deildarleiki liðsins sem eftir er og komast alla leið í úrslit í umspilinu til að jafna met Arnórs Guðjohnsen sem spilaði 523 leiki á sínum tíma.


