Goncalo Ramos er frjálst að yfirgefa Paris Saint-Germain í sumar.
Fabrizio Romano greinir frá þessu en hann segir að Ramos muni einbeita sér að því að hjálpa liðinu af fullum krafti þar til tímabilinu lýkur.
Fabrizio Romano greinir frá þessu en hann segir að Ramos muni einbeita sér að því að hjálpa liðinu af fullum krafti þar til tímabilinu lýkur.
PSG er nálægt því að tryggja sér franska titilinn og þá er í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Liðið er 5-4 yfir gegn Bayern eftir fyrri viðureignina í Frakklandi.
Ítalski fjölmiðlamaðurinn Gianluca Di Marzio segir að mörg lið á Ítalíu hafi áhuga á þessum portúgalska framherja.




