Það fóru þrír leikir fram í 2. deild karla í dag þar sem Selfoss tapaði heimaleik gegn KFA.
Gestirnir frá Austurlandi komust í tveggja marka forystu á fyrsta stundarfjórðungi leiksins áður en Jón Daði Böðvarsson minnkaði muninn á 41. mínútu.
KFA bætti tveimur mörkum til viðbótar á lokamínútum fyrri hálfleiks svo staðan var 1-4 í leikhlé. Geir Sigurbjörn Ómarsson var atkvæðamestur með tvennu.
Aron Lucas Vokes minnkaði muninn í upphafi síðari hálfleiks en nær komust heimamenn ekki, lokatölur 2-4. Liðin áttust við í fyrstu umferð á nýju deildartímabili og lék Viðar Örn Kjartansson allan leikinn með Selfyssingum.
Benjamín Jónsson markvörður fékk beint rautt spjald í uppbótartíma fyrri hálfleiks og misstu Selfyssingar svo Brynjar Bergsson af velli með tvö gul spjöld í síðari hálfleik.
Hörmuleg byrjun á deildartímabilinu á Selfossi en það er mikil trú í bænum að liðið fari beint aftur upp í Lengjudeildina enda með fyrrum landsliðsmenn í sínum röðum.
Kári rúllaði þá yfir KFG í leik þar sem Matthías Daði Gunnarsson fór á kostum og skoraði þrennu. Lokatölur 5-1 fyrir Kára.
Að lokum skoraði Áki Sölvason eina mark leiksins er Dalvík/Reynir rétt marði tíu leikmenn í gestaliði Kormáks/Hvatar.
Áki skoraði afar dramatískt sigurmark á 95. mínútu til að ná í flott stig.
Selfoss 2 - 4 KFA
0-1 Geir Sigurbjörn Ómarsson ('10)
0-2 Jawed Abd El Resak Boumeddane ('14)
1-2 Jón Daði Böðvarsson ('41)
1-3 Nenni Þór Guðmundsson ('43)
1-4 Geir Sigurbjörn Ómarsson ('45+4, vítaspyrna)
2-4 Aron Lucas Vokes ('49)
Kári 5 - 1 KFG
1-0 Matthías Daði Gunnarsson ('11 )
2-0 Matthías Daði Gunnarsson ('18 )
3-0 Sigurjón Logi Bergþórsson ('29 )
4-0 Matthías Daði Gunnarsson ('40 )
5-0 Tómas Týr Tómasson ('51 )
5-1 Björn Darri Ásmundsson ('68 )
Dalvík/Reynir 1 - 0 Kormákur/Hvöt
1-0 Áki Sölvason ('95 )




