Chelsea og Arsenal vilja Kroupi - Man Utd bjartsýnt á að landa Ederson og Tonali - Inter hefur áhuga á Kepa
   lau 02. maí 2026 17:35
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu mörkin: Gyökeres rauf tuttugu marka múrinn
Viktor Gyökeres er kominn með tvennu gegn Fulham
Viktor Gyökeres er kominn með tvennu gegn Fulham
Mynd: EPA
Sænski framherjinn Viktor Gyökeres rauf tuttugu marka múrinn með Arsenal á fyrsta tímabili sínu er hann kom liðinu yfir gegn Fulham, en hann er kominn með tvö mörk og eina stoðsendingu þegar búið er að flauta til loka fyrri hálfleiks.

Gyökeres hefur verið gagnrýndur harðlega síðan hann kom frá Sporting.

Frammistaða hans hefur verið blendin en hann hefur þó verið duglegur að raða inn mörkum og er nú kominn með tuttugu í öllum keppnum.

Sjáðu fyrra markið hjá Gyökeres

Saka kom með sendingu inn á teiginn á Gyökeres sem skoraði og endurgjaldaði Svíinn greiðann með því að leggja upp fyrir Saka síðar í leiknum.

Sjáðu markið hjá Saka

Gyökeres bætti við öðru marki sínu undir lok fyrri hálfleiks til að nánast gulltryggja sigurinn. Hann er því kominn með 21 mark á tímabilinu.

Sjáðu annað markið hjá Gyökeres

Allt stefnir í að Arsenal verði með sex stiga forystu á toppnum eftir daginn.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 37 25 7 5 69 26 +43 82
2 Man City 37 23 9 5 76 33 +43 78
3 Man Utd 37 19 11 7 66 50 +16 68
4 Aston Villa 37 18 8 11 54 48 +6 62
5 Liverpool 37 17 8 12 62 52 +10 59
6 Bournemouth 37 13 17 7 57 53 +4 56
7 Brighton 37 14 11 12 52 43 +9 53
8 Chelsea 37 14 10 13 57 50 +7 52
9 Brentford 37 14 10 13 54 51 +3 52
10 Sunderland 37 13 12 12 40 47 -7 51
11 Newcastle 37 14 7 16 53 53 0 49
12 Everton 37 13 10 14 47 49 -2 49
13 Fulham 37 14 7 16 45 51 -6 49
14 Leeds 37 11 14 12 49 53 -4 47
15 Crystal Palace 37 11 12 14 40 49 -9 45
16 Nott. Forest 37 11 10 16 47 50 -3 43
17 Tottenham 37 9 11 17 47 57 -10 38
18 West Ham 37 9 9 19 43 65 -22 36
19 Burnley 37 4 9 24 37 74 -37 21
20 Wolves 37 3 10 24 26 67 -41 19
Slapp
banner
banner