„Tilfinningin er bara ekki góð, ég ætla bara segja alveg eins og er. Mér fannst þetta bara vera langt langt langt frá því að vera það sem við viljum standa fyrir,'' segir Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari HK, eftir 2-1 sigur gegn Ægir í 2. umferð Lengjudeildarinnar.
Lestu um leikinn: HK 2 - 1 Ægir
„Við byrjuðum leikinn vel, náðum markinu bara góðu marki snemma. Það er bara eins og eftir að við skorum þetta mark að þá bara gírum við okkur niður í tvo eða þrjá gíra. Við héldum bara einhvern vegin að við myndum bara komast upp með það, sem er algjörlega galið. Við vitum það að þessi deild er náttúrulega mjög jöfn og það er allir sem geta unnið alla hérna og ef þú ert ekki 'on it', þá verður þér bara refsað, þetta er ekki flókið. Ég er bara ekkert eðlilega óánægður með þetta.''
„Við komum vel inn í leikinn og mér fannst fyrsta korterið gott. Við skorum auðvitað mark en þá eigum við bara að halda áfram, skilurðu. Þá eigum við að halda áfram, ná í annað mark og þriðja mark. Ef þeir eru ekki mættir þá eigum við bara að fara þarna og klára þetta. Fyrir lið sem ætlar að vera í einhverri toppbaráttu þá verðum við að gera þetta betur,“
HK gerir sig ferð til Ísafjarðar fyrir næstu umferð í mikilvægum leik gegn Vestri.
„Allir leikir í þessari deild eru bara sex stiga leikir, þetta er ekki flókið. Við vitum það að mörg lið eru búin að tjalda miklu til og það eru bara mörg mjög góð lið í þessari deild. En við þurfum klárlega að gera milljón sinnum betur en við gerðum í dag, það er það eina sem ég bið um.''
Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.
























