Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
   fös 01. maí 2026 23:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Fögnum almennilega þegar þetta er stærðfræðilega klárt"
Mynd: EPA
Leeds fór langt með að gulltryggja áframhaldandi veru í úrvalsdeildinni með 3-1 sigri á Burnley í kvöld.

Leeds er níu stigum á undan Tottenham þegar liðið á þrjá leiki eftir en Tottenham á leik til góða. Leeds er taplaust í síðustu sex deildarleikjum, vann West Ham í 8-liða úrslitum enska bikarsins en lauk leik í keppninni eftir tap gegn Chelsea í undanúrslitum um síðustu helgi. Daniel Farke, stjóri Leeds, er mjög stoltur af liðinu.

„Þetta eru risastór þrjú stig fyrir okkur. Ég er mjög stoltur af strákunum mínum fyrir að standa sig vel á erfiðum tíma, með auka álagi í mikilvægum bikarleikjum, við þurftum að spila í lögnum útileik gegn West Ham og einn leik á Wembley," sagði Farke.

„Nokkrir leikmenn hafa verið að glíma við smá meiðsli en að næla í tíu stig úr síðustu fjórum leikjum á erfiðum kafla, sem nýliði, er ótrúlegt. Þetta var risastórt skref fyrir okkur í kvöld. Verkinu er ekki lokið. Við fögnum almennilega þegar þetta er stærðfræðilega klárt en 43 stig er gott."
Slapp
banner
banner
banner