Tímabilinu er lokið hjá Lamine Yamal með Barcelona en félagið staðfesti það í síðustu viku.
Yamal skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu gegn Celta Vigo í spænsku deildinni en hann þurfti að fara af velli vegna meiðsla strax í kjölfarið.
Barcelona greindi frá því að það væri góðar líkur á því að hann yrði með spænska landsliðinu á HM í sumar. Hansi Flick, stjóri liðsins, tjáði sig um ungstirnið í gær.
„Við erum í sambandi við hann. Honum gengur vel, hann er á réttri leið. Ég tel að við munum sjá hann á HM. Hann hefur tíma til að jafna sig og snúa aftur, það er það sem hann vill," sagði Flick.



