Kristall Máni Ingason var á skotskónum annan leikinn í röð með norska liðinu Brann sem vann 3-1 sigur á Fredrikstad í norsku úrvalsdeildinni í dag.
Kristall stimplaði sig rækilega inn í lið Brann í síðasta leik með þrennu og fylgdi honum vel á eftir með marki og stoðsendingu gegn Fredrikstad.
Hann kom Brann á bragðið á 6. mínútu og lagði síðan upp annað marki tuttugu mínútum fyrir leikslok.
Norðmaðurinn Bard Finne skoraði síðan dýrmætt þriðja mark liðsins seint í uppbótartíma úr vítaspyrnu, aðeins nokkrum mínútum eftir að hafa komið inn á sem varamaður.
Kristall og Jón Dagur Þorsteinsson byrjuðu báðir leikinn hjá Brann sem er í 5. sæti deildarinnar með 10 stig. Freyr Alexandersson er þjálfari liðsins.
Brynjólfur Andersen Willumsson kom inn af bekknum hjá Groningen sem tapaði fyrir Excelsior, 3-2, í hollensku úrvalsdeildinni.
Blikinn spilaði síðustu tuttugu mínúturnar en Groningen er í 10. sæti með 42 stig þegar tvær umferðir eru eftir.
Logi Tómasson og félagar hans í Samsunpor unnu ótrúlegan 4-1 sigur á tyrknesku meisturunum í Galatasaray á heimavelli. Víkingurinn spilaði allan leikinn og hjálpaði þarna Fenerbahce að komast aftur inn í titilbaráttuna þegar tvær umferðir eru eftir af deildinni.
Fjögur stig skilja nú Galatasaray og Fenerbahce að, en Samsunpor er í 7. sæti með 48 stig.




