Tindastóll 2 - 8 Keflavík
0-1 Ariela Lewis ('27 )
1-1 Hrafney Lea Árnadóttir ('33 )
1-2 Ariela Lewis ('46 )
1-3 Olivia Madeline Simmons ('53 )
1-4 Eva Dís Sighvatsdóttir ('56 )
1-5 Hilda Rún Hafsteinsdóttir ('63 )
1-6 Alyssa Yana Daily ('76 )
1-7 María Rán Ágústsdóttir ('81 )
1-8 Olivia Madeline Simmons ('86 , víti)
2-8 Rita Feist Lang ('90 )
Lestu um leikinn
0-1 Ariela Lewis ('27 )
1-1 Hrafney Lea Árnadóttir ('33 )
1-2 Ariela Lewis ('46 )
1-3 Olivia Madeline Simmons ('53 )
1-4 Eva Dís Sighvatsdóttir ('56 )
1-5 Hilda Rún Hafsteinsdóttir ('63 )
1-6 Alyssa Yana Daily ('76 )
1-7 María Rán Ágústsdóttir ('81 )
1-8 Olivia Madeline Simmons ('86 , víti)
2-8 Rita Feist Lang ('90 )
Lestu um leikinn
Keflavík byrjaði tímabilið með pomp og prakt með því að niðurlægja Tindastól, 8-2, í 1. umferð Lengjudeildar kvenna á Sauðárkróksvellinum í dag.
Keflvíkingum var spáð fimmta sætinu fyrir tímabilið á meðan Stólunum var spáð falli niður um deild annað árið í röð.
Það tók gestina tíma að brjóta vörn Tindastóls á bak aftur og kom ekki fyrsta markið fyrr en á 27. mínútu frá Arielu Lewis, en Hrafney Lea Árnadóttir jafnaði aðeins sex mínútum síðar.
Flóðgáttirnar opnuðust í síðari hálfleiknum. Ariela Lewis gerði annað mark sitt í upphafi hans og síðan bættu Keflvíkingar við þremur mörkum á tíu mínútum.
Aftur skoruðu þær þrjú mörk á tíu mínútum. Alyssa Yana Daily og María Rán Ágústsdóttir skoruðu áður en Olivia Madeline Simmons gerði annað mark sitt úr vítaspyrnu.
Rita Feist Lang klóraði í bakkann fyrir Tindastól undir lok leiks en lengra komust Stólarnir ekki. Þægilegur 8-2 sigur hjá Keflavík sem gat ekki beðið um mikið betri byrjun, en þetta var annar leikurinn í röð sem liðið skorar átta mörk en það gerði það líka gegn KÞ í Mjólkurbikarnum á dögunum.
Lengjudeild kvenna
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Haukar | 3 | 3 | 0 | 0 | 9 - 5 | +4 | 9 |
| 2. KR | 3 | 3 | 0 | 0 | 8 - 5 | +3 | 9 |
| 3. Grótta | 3 | 2 | 0 | 1 | 9 - 7 | +2 | 6 |
| 4. Keflavík | 3 | 1 | 1 | 1 | 8 - 4 | +4 | 4 |
| 5. Selfoss | 3 | 1 | 1 | 1 | 6 - 5 | +1 | 4 |
| 6. HK | 3 | 1 | 0 | 2 | 6 - 6 | 0 | 3 |
| 7. Völsungur | 3 | 1 | 0 | 2 | 5 - 5 | 0 | 3 |
| 8. FHL | 3 | 1 | 0 | 2 | 4 - 5 | -1 | 3 |
| 9. ÍA | 3 | 1 | 0 | 2 | 4 - 6 | -2 | 3 |
| 10. Tindastóll | 3 | 0 | 0 | 3 | 3 - 14 | -11 | 0 |
