Chelsea og Arsenal vilja Kroupi - Man Utd bjartsýnt á að landa Ederson og Tonali - Inter hefur áhuga á Kepa
   lau 02. maí 2026 19:43
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Leverkusen í Meistaradeildarsæti - Schick með stórleik
Patrik Schick skoraði þrennu og kom Leverkusen í Meistaradeildarsæti
Patrik Schick skoraði þrennu og kom Leverkusen í Meistaradeildarsæti
Mynd: EPA
Bayer 4 - 1 RB Leipzig
1-0 Patrik Schick ('25 )
2-0 Nathan Tella ('45 )
3-0 Patrik Schick ('76 )
3-1 Christoph Baumgartner ('80 )
4-1 Patrik Schick ('89 )

Bayer Leverkusen kom sér upp í Meistaradeildarsæti með 4-1 sigri sínum á RB Leipzig í 32. umferð þýsku deildarinnar í kvöld.

Tékkinn Patrik Schick átti stórleik hjá Leverkusen, en hann skoraði þrennu og er nú þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar með sextán mörk.

Schick gerði fyrsta markið á 25. mínútu eftir hraða og vel útfærða sókn áður en Nathan Tella tvöfaldaði forystuna undir lok fyrri hálfleiksins.

Annað mark Schick kom á 76. mínútu áður en Leipzig svaraði með sárabótarmarki tíu mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma. Á 89. mínútu fullkomnaði Schick síðan þrennuna er hann fékk frábæra sendingu inn fyrir frá Alex Grimaldo og kláraði af yfirvegun.

Leverkusen er komið upp í 4. sæti með 58 stig og með betri markatölu en Stuttgart sem er í 5. sætinu á meðan Leipzig er í 3. sæti með 62 stig.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 34 28 5 1 122 36 +86 89
2 Dortmund 34 22 7 5 70 34 +36 73
3 RB Leipzig 34 20 5 9 66 47 +19 65
4 Stuttgart 34 18 8 8 71 49 +22 62
5 Hoffenheim 34 18 7 9 65 52 +13 61
6 Leverkusen 34 17 8 9 68 47 +21 59
7 Freiburg 34 13 8 13 51 57 -6 47
8 Frankfurt 34 11 11 12 61 65 -4 44
9 Augsburg 34 12 7 15 45 61 -16 43
10 Mainz 34 10 10 14 44 53 -9 40
11 Union Berlin 34 10 9 15 44 58 -14 39
12 Gladbach 34 9 11 14 42 53 -11 38
13 Hamburger 34 9 11 14 40 54 -14 38
14 Köln 34 7 11 16 49 63 -14 32
15 Werder 34 8 8 18 37 60 -23 32
16 Wolfsburg 34 7 8 19 45 69 -24 29
17 Heidenheim 34 6 8 20 41 72 -31 26
18 St. Pauli 34 6 8 20 29 60 -31 26
Slapp