Chelsea og Arsenal vilja Kroupi - Man Utd bjartsýnt á að landa Ederson og Tonali - Inter hefur áhuga á Kepa
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
Siggi Höskulds ósáttur: Skilar sér núll inn á völlinn
Haraldur Freyr: Mögulega okkar versta frammistaða í sumar
„Líður miklu betur með svona tapleiki heldur en þegar menn leggja sig ekki fram"
Ásgeir Orri: Ég var ansi hræddur
Hemmi Hreiðars: Sætast í heimi
   lau 02. maí 2026 19:22
Sverrir Örn Einarsson
Hetjan Hallgrímur æfði ekkert í vikunni: Ákvað að svara þegar ég skoraði
Hallgrímur Mar Steingrímsson
Hallgrímur Mar Steingrímsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hallgrímur Mar Steingrímsson var hetja KA er liðið sótti sinn fyrsta sigur í Bestu deildinni í ár í greipar erkifjenda sinna í Þór á útivelli. Hallgrímur skoraði eina markið í 1-0 sigri úr vítaspyrnu sem hann fékk sjálfur og var að vonum ánægður í leikslok. Hvernig var að spila leikinn?

Lestu um leikinn: Þór 0 -  1 KA

„Það var sturlað. Það var banter hjá báðum stuðningsmannasveitum sem var geðveikt. Ég ákvað að svara þeim aðeins þarna þegar ég skoraði. En þetta var bara sturlað og geðveikt að fá allan þennan fjölda í stúkuna.“

Um leikinn sjálfan og spilamennsku KA sagði Hallgrímur.

„Allt í lagi. Ég hefði alveg viljað halda boltanum og skapa fleiri færi en þetta voru bara slagsmál allan leikinn og mikið um stopp hjá Ívari. Sem er kannski skiljanlegt í fyrsta leik á milli þessara liða í langan tíma.“

Hallgrímur sem alla jafna er fyrsti maður á blaði í liði KA hefur verið að ströggla að undanförnu og byrjaði til að mynda ekki gegn Keflavík á dögunum.

„Ég hreinlega veit það ekki. Ég fékk eitthvað í mjöðmina rétt fyrir Víkingsleikinn og er bara búinn að vera að glíma við það. Var góður í síðustu viku og náði seinni hálfleik gegn Keflavík en í þessari viku missti ég af öllum æfingunum eiginlega og þurfti að taka verkjalyf í dag, En ég var ekki að fara að missa af þessum leik “

Sagði Hallgrímur en allt viðtalið má sjá hér að ofan

Slapp
banner
banner