„Þetta var ótrúlega lélegt. Þetta er eitthvað sem ég hef ekki séð undir minni stjórn. Hvorki á æfingum né í öðrum leikjum. Það er alveg grátlegt að við getum ekki gert betur en þetta með svona mikið undir," sagði Gunnar Heiðar Þorvaldsson þjálfari Njarðvíkur eftir að liðið tapaði 2-4 gegn Leikni í Lengjudeildinni í dag.
Lestu um leikinn: Njarðvík 2 - 4 Leiknir R.
„Ég veit ekki hvort menn haldi að þetta komi að sjálfu sér því það hefur verið svo góður taktur í okkur. Það voru erfiðar aðstæður en þær voru erfiðar fyrir bæði lið. Það er reynt að spila fótbolta og auðvitað eru ekki allar sendingar on og allt það en mínir menn hættu einhvern veginn."
Gunnar Heiðar var mjög ósáttur við annað mark Leiknis sem Daníel Finns Matthíasson skoraði úr vítaspyrnu. Það var þó ekki vítaspyrnudómurinn sem truflaði hann heldur framkvæmd spyrnunnar.
„Ég vil ekki tala um dómara og hef aldrei gert en ég verð bara að nefna þetta," sagði hann.
„Mark númer tvö á ekki að standa. Það er í öllum reglum, í öllum heiminum, að ef þú snertir boltann tvisvar, þá er dæmd aukaspyrna fyrir hitt liðið. Þetta meikar ekki sens því hann getur ekki sparkað bolta svona nema snerta hann tvisvar. Þú þyrftir að vera Albert Einstein eða einhver eðlisfræðingur til að geta gert það. Við hinir sem þekkjum ágætlega eðlisfræðina sjáum að þetta er svo skýrt að hann snertir boltan tvisvar," hélt Gunnar Heiðar áfram en heldur hann að boltinn hafi farið yfir marklínuna?
„Svo veit ég það ekki einu sinni og það skiptir engu máli fyrir mig. Heldur bara að hann snertir boltann tvisvar sem allir sjá og þeir eru einu þrír sem sjá þetta."
Í hálfleik mátti sjá að Gunnar Heiðar ræddi við Gunnar Freyr Róbertsson dómara á leið til búningsklefa.
„Ég spurði hann út í þetta og hann sagðist ekki hafa séð neitt og fríaði sig eins og margir dómarar gera. Hann er með aðstoðarmann við hliðina á sér sem sér líka og þeir fara og ræða saman sem mér finnst mjög spes því þeir ákveða samt að dæma mark. Þetta er risastór faktor fyrir leikinn. Þarna fá þeir 2-0 og við skorum stuttu á eftir og hefðum getað jafnað í 1-1 í stað 2-1. Því miður eru þetta alltof dýrkeypt mistök hjá dómurunum."
Nánar er rætt við Gunnar Heiðar í spilaranum að ofan þar sem hann ræðir um aðstæður á vellinum í dag, mikið rok og rigningu, og afhverju leiknum var ekki flýtt. Hann ræðir líka komandi fallbaráttu í deildinni.























