Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 03. júlí 2020 14:40
Elvar Geir Magnússon
Búið að raða frestuðu Stjörnuleikjunum - 5. umferð lýkur í október
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Næsti leikur Stjörnunnar í Pepsi Max-deild karla verður þann 12. júlí en liðið er í sóttkví eftir að leikmaður liðsins greindist með kórónaveiruna.

Leikjum liðsins í 3., 4. og 5. umferð var frestað en nú hefur mótanefnd KSÍ raðað þeim leikjum niður.

Einnig er búið að opinbera leikjaniðurröðun sem gildir eftir 1. ágúst en hér má sjá dagskrána á heimasíðu KSÍ.

Stjarnan mun leika frestuðu leikina gegn KA og FH í ágúst en leikurinn gegn KR í 5. umferð verður ekki leikinn fyrr en 1. október. Aðrir leikir í þeirri umferð fara fram um miðja næstu viku.

Liðum Pepsi Max-deildarinnar var boðið að mæta í skimun í þessari viku en þar komu engin ný smit upp á yfirborðið.
Athugasemdir
banner
banner
banner