Bjarni Þór Viðarsson kom einnig til liðs við FH í dag og hér er Jeremy með honum og Heimi Guðjónssyni þjálfara.
,,Ég er ánægður með að semja hérna til tveggja ára," sagði belgíski kantmaðurinn Jeremy Serwy við Fótbolta.net í dag eftir að hafa gengið til liðs við FH. Hann æfði með FH á reynslu fyrr í á árinu og spilaði þá tvo leiki í Fótbolta.net mótinu gegn Breiðabliki og Þrótti. Hann skoraði mörk beint úr aukaspyrnu í báðum leikjunum.
,,Mér leið mjög vel þegar ég spilaði hérna og æfði og þó veðrið henti mér ekki þá líst mér mjög vel á þetta. Ég gat ekki hafnað þessu tilboði."
,,Fyrst þegar ég kom hingað var ég í smá sjokki því Ísland er lítið land og ég vissi ekki hvað ég var að fara út í. Fólkið hérna er líka mjög gott og aðstæður hérna til æfingar og styrkleikinn á æfingum. Mér finnst hann mjög góður og betri en í Ungverjalandi þar sem ég var síðast. Félagið er mjög faglegt og allt í lagi hérna, ég er ánægður með að hafa samið hérna.
Jeremy hefur verið á mála hjá Dortmund í Þýskalandi og spilaði fyrr á ferli sínum með Zulte-Waregem í Belgíu en þar var Ólafur Ingi Skúlason landsliðsmaður Íslands liðsfélagi hans. Ólafur Ingi kynnti landið fyrir honum.
,,Óli Skúla er virkilega fínn náungi og við náðum vel saman. Hann vildi hjálpa mér að finna einhverja lausn og ræddi við mig um félög frá Svíþjóð, Noregi og Íslandi. Þegar ég var í Dortmund gaf hann mér myndir af Íslandi og sagði að fólkið væri mjög skemmtilegt og gott og mjög jákvætt. Ég man vel eftir þessu og vildi alltaf koma hingað þegar hann talaði um þetta. Það er gott að hafa komið hingað og ég er virkilega ánægður."
Jeremy spilaði tvo leiki með FH í Fótbolta.net mótinu á báðum köntum.
,,Ég hafði ekki spilað í sex mánuði í Ungverjalandi þegar ég kom hingað og ég varð að sanna mig. Ég var ekki í góðu leikformi en guði sé lof þá sýndi ég eitthvað og skoraði tvö mörk. Ég vona að þau verði ekki bara tvö og ég skori aftur. Markmiðið á árinu er að spila vel og gefa félaginu eitthvað til baka."
Mörkin sem Jeremy skoraði fyrir FH í Fótbolta.net mótinu voru engin venjuleg mörk heldur stórglæsileg mörk beint úr aukaspyrnum.
,,Já ég skoraði tvö frábær aukaspyrnumörk. Í Ungverjalandi æfði ég þetta sérstaklega. Þetta eru ekki einu gæði mín, ég tel mig gefa góðar sendingar og rekja boltann vel og hafa góðan leikskilning. Ég vonast til að sýna þessi gæði með FH," sagði Jeremy sem hefur skorað beint úr aukaspyrnu í báðum leikjum sem hann hefur spilað fyrir FH, verða þau þá 22 í sumar?
,,Vonandi get ég skorað í mörgum leikjum og vonandi skora ég aftur úr aukaspyrnum. Vonandi eru þetta ekki bara tveir leikir. Ég mun vinna í því. Mér líður vel og ég er ekki að hugsa um að vinna mér inn samning því ég er samningsbundinn hérna og ætla að vinna fyrir FH. Vonandi vinnum við deildina og komumst í riðlakeppni Evrópudeildarinnar."
,,Við þurfum að spila nokkra leiki í undankeppninni og vonandi komumst við áfram úr því og komum á óvart í Evrópudeildinni. Það verður góð reynsla fyrir alla að komast þangað og spila gegn sterkum liðum. Vonandi tekst það."





















