Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 04. mars 2023 12:57
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Allt galopið fyrir Foden
Mynd: Getty Images
Phil Foden var að koma Manchester City í 1-0 gegn Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni en hann opnaði vörn gestanna upp á gátt áður en hann skoraði.

Heimamenn stigu hátt upp og sendu boltann sín á milli. Rodri fann Phil Foden hægra megin á vellinum. Kevin de Bruyne var með honum og hljóp Joelinton á eftir belgíska miðjumanninum en það gleymdist þó að læsa vörninni.

Foden sá opið svæði sem enginn leikmaður Newcastle var að vernda og nýtti sér það. Foden keyrði inn í teiginn áður en hann kom boltanum í markið.

Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.

Sjáðu markið hjá Foden
Athugasemdir
banner