Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 05. janúar 2021 22:10
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Tottenham og Brentford: Sissoko maður leiksins
Mynd: Getty Images
Moussa Sissoko var valinn maður leiksins er Tottenham lagði Brentford að velli í undanúrslitum enska deildabikarsins í kvöld.

Sissoko fær 8 í einkunn. Hann skoraði fyrsta mark leiksins með flottum skalla eftir fallegt hlaup en Sergio Reguilon átti stórkostlega fyrirgjöf og fær 7 fyrir sinn þátt í kvöld.

Son Heung-min og Pierre-Emile Höjbjerg fá einnig 8 í einkunn en flestir aðrir í liði Tottenham fá 7. Leikmenn Brentford fá ýmist 5 eða 6 í einkunnagjöf Sky Sports.

Tottenham mætir annað hvort Manchester United eða City í úrslitaleiknum.

Tottenham: Lloris (6), Aurier (7), Sanchez (7), Dier (7), Reguilon (7), Sissoko (8), Hojbjerg (8), Lucas Moura (7), Ndombele (7), Son (8), Kane (7).
Varamenn: Winks (6), Davies (6)

Brentford: Raya (6), Dalsgaard (5), Pinnock (6), Sorensen (5), Henry (6), Da Silva (5), Janelt (5), Jensen (5), Mbeumo (6), Toney (6), Canos (5).
Varamaður: Marcondes (6)


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner