Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 05. janúar 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Milan leggur fram tilboð í varnarmann Strasbourg
Mohamed Simakan í leik með Strasbourg gegn Marseille
Mohamed Simakan í leik með Strasbourg gegn Marseille
Mynd: Getty Images
AC Milan hefur lagt fram tilboð í Mohamed Simakan, varnarmann Strasbourg í Frakklandi.

Milan er í leit að miðverði og passar Simakan vel inn í hugmyndafræði Milan.

Franski varnarmaðurinn er 20 ára gamall og hefur verið að spila vel með Strasbourg í frönsku deildinni.

Samkvæmt Goal.com hefur Milan lagt fram 15 milljón evra tilboð í leikmanninn en þýska félagið RB Leipzig er einnig sagt hafa áhuga á honum.

Milan reyndi að kaupa hann frá Strasbourg síðasta sumar en ítalska félagið var þó ekki reiðubúið að greiða uppsett verð. Nú er staðan önnur og er talið afar líklegt að hann eigi eftir að færa sig um set áður en glugginn lokar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner