Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   sun 06. september 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sheffield United á eftir ungum kantmanni Bayern München
Leon Dajaku.
Leon Dajaku.
Mynd: Getty Images
Sheffield United er eitt af fjórum félögum sem hefur lýst yfir áhuga á Leon Dajaku, ungum leikmanni Bayern München.

Goal segist hafa heimildir fyrir þessu.

Hinn 19 ára gamli Dajaku vill fara frá Bayern til að fá meiri spiltíma og Sheffield United hefur áhuga á að fá hann á láni.

Dajaku er spennandi kantmaður sem hefur einnig vakið áhuga hjá Swansea í Wales, sem og ítölsku félögunum Sassuolo og Torino. Hann vill fara eitthvert þar sem hann getur spilað fullt af leikjum.

Sheffield United var spútniklið ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð og hafnaði í níunda sæti sem nýliðar.
Athugasemdir
banner
banner