Tyrkneski framherjinn Burak Yilmaz skoraði tvö mörk er Lille vann Lens 3-0 í frönsku deildinni í kvöld en Lille er í lykilstöðu til að vinna deildina í ár.
Yilmaz gerði fyrra markið úr vítaspyrnu á 4. mínútu áður en hann bætti við öðru fimm mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks.
Það mark var í hæsta gæðaflokki en hann fékk boltann 35 metrum frá markinu, lagði boltann fyrir sig og lét svo vaða upp í samskeytin.
Óverjandi fyrir markvörð Lens en hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.
Sjáðu markið hjá Yilmaz
Athugasemdir