Greenwood orðaður við Liverpool - Bournemouth vill Nwaneri lánaðan - Glasner ræðir við Palace áður en hann tekur ákvörðun
   fim 08. janúar 2026 11:45
Kári Snorrason
Chelsea í sérflokki þegar kemur að rauðum spjöldum
Frá leik Chelsea og Brighton fyrr á tímabilinu, Trevoh Chalobah fékk þar að líta rauða spjaldið.
Frá leik Chelsea og Brighton fyrr á tímabilinu, Trevoh Chalobah fékk þar að líta rauða spjaldið.
Mynd: EPA
Agaleysi virðist ríkja í liði Chelsea, en liðið hefur fengið fimm rauð spjöld í ensku úrvalsdeildinni það sem af er tímabils. Næsta lið hefur aðeins fengið tvö rauð.

Chelsea hefur alls fengið sjö rauð spjöld í öllum keppnum. Marc Cucurella var sá síðasti en hann var rekinn af velli í gær í 2-1 tapi liðsins í nágrannaslag gegn Fulham.

Ellefu ár eru frá því að lið hefur fengið jafnmörg rauð spjöld eftir 21 leik.

Þá er Chelsea á góðri leið með að gera atlögu að óeftirsóknarverðu meti QPR og Sunderland sem hafa fengið níu rauð spjöld í deild á einu og sama tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner