Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 08. ágúst 2022 21:55
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Skoraði draumamark en klikkaði svo á víti
Ismaila Sarr gerði geggjað mark en klikkaði á mikilvægu augnabliki
Ismaila Sarr gerði geggjað mark en klikkaði á mikilvægu augnabliki
Mynd: Getty Images
West Brom 1 - 1 Watford
0-1 Ismaila Sarr ('12 )
1-1 Karlan Grant ('45 )
1-1 Ismaila Sarr ('73 , Misnotað víti)

Senegalski kantmaðurinn Ismaila Sarr var í sviðsljósinu í 1-1 jafntefli Watford gegn WBA í ensku B-deildinni á The Hawthorns-leikvanginum í kvöld.

Sarr skoraði draumamark á 12. mínútu. Hann fékk boltann við miðjuna, horfði upp og sá að David Button, markvörður WBA, stóð alltof framarlega og nýtti sér það með að þruma boltanum yfir hann og í netið.

Karlan Grant jafnaði metin fyrir WBA undir lok fyrri hálfleiks en Sarr fékk tækifæri á að koma Watford yfir á 73. mínútu. Sarr lét vaða á markið en Button varði og bætti upp fyrir mistök sín fyrr í leiknum.

Lokatölur 1-1 á Hawthorns. Watford er með 4 stig eftir fyrstu tvo leikina en WBA er með 2 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner