Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 08. september 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Úrvalsdeildin í eFótbolta hefst á morgun
Mynd: Getty Images
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, og Rafíþróttasamtök Íslands, RÍSÍ, hafa tekið höndum saman og stofnað úrvalsdeildina í eFótbolta.

Úrvalsdeildin fer fram með þeim hætti að leikmenn spila einn á móti einum í vinsælasta íþróttaleik heims, FIFA. Fyrstu leikirnir verða í FIFA20 en um leið og næsta útgáfa kemur út skipta keppendur yfir í FIFA21.

Það eru átta keppendur í úrvalsdeildinni og eru þrír þeirra úr röðum Fylkis.

Veislan hefst annað kvöld klukkan 19:30 og verða báðir leikir kvöldsins sýndir beint á Stöð 2 Sport eSport og Twitch rás KSÍ. Helmingur allra leikja tímabilsins verða sýndir í beinni útsendingu.

Deildin er skipuð leikmönnum sem enduðu í efstu sætum Íslandsmótsins í vor.

Leifur Sævarsson leikmaður LFG
Tindur Örvar Örvarsson leikmaður Fylkis
Aron Þormar Lárusson leikmaður Fylkis
Jóhann Ólafur Jóhannsson leikmaður LFG
Róbert Daði Sigurþórsson leikmaður Fylkis
Bjarki Már Sigurðsson leikmaður Víkings Rvk
Alexander Aron Hannesson leikmaður Keflavík
Guðmundur Tómas Sigfússon leikmaður ÍBV

Af vef KSÍ:
Spilaðar verða 14 umferðir á 13 vikum í úrvalsdeildinni. Einnig verður opnað á skráningar í opnar deildir, eða neðri deildir, og sigurvegari í opnu deildinni vinnur sér inn þátttökurétt í úrvalsdeildinni á næsta tímabili.

Hver viðureign samanstendur af tveimur leikjum og samanlögð markatala ræður úrslitum. Keppt verður í FUT (FIFA Ultimate Team).

3 stig fyrir sigur.
1 stig fyrir jafntefli.
0 stig fyrir tap.

Það verður einvalalið sem mun færa okkur nær keppninni á skjánum en þáttastjórnandi er Arnar Dan Kristjánsson og fær hann til sín í hverjum þætti einn lýsanda en lýsendur þessa tímabills eru Ómar Freyr Sævarsson, Cecilia Rán Rúnarsdóttir og Arelius Sveinn Areliusarson.

Arnar Dan sagði við tækifærið að hann væri spenntur að fá að taka þátt í því að færa landsmönnum gott sjónvarp en um leið yrði krufið til mergjar hvað er það sem gerir þessa leikmenn svona góða. "Það verður gaman að fá líka ólíka lýsendur með mér í lið og Ómar, Cecilia og Arelius eru öll svo ólík að þetta verður algjör veisla. Ég hlakka til að sýna frá heimsóknunum mínum til leikmannana þar sem ég fékk að kynnast þeim enn betur. Það er bara mjög margt til að hlakka til, efótbolti er svo skemmtileg íþrótt. Enginn áhugamaður um fótbolta ætti að láta þetta framhjá sér fara."

Athugasemdir
banner
banner