Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 09. apríl 2021 06:00
Aksentije Milisic
Napoli hættir við að kaupa Bakayoko
Í leik með Chelsea.
Í leik með Chelsea.
Mynd: Getty Images
Napoli hefur hætt við að kaupa Tiemoue Bakayoko en þetta segja ítalskir miðlar.

Þessi 26 ára gamli miðjumaður gekk til liðs við Napoli frá Chelsea á láni í október mánuði. Hann hefur spilað 36 leiki fyrir Napoli í vetur og skorað eitt marki.

Á undanförnum mánuðum hefur hann fallið niður goggunarröðina hjá Gennaro Gattuso, þjálfara liðsins. Hann hefur ekki spilað 90 mínútna leik síðan í febrúar mánuði.

Hann var á varamannabekknum í tapi Napoli gegn Juventus í miðri viku. Hann mun því að öllum líkindum snúa aftur til Chelsea eftir að tímabilinu lýkur.

Hann gæti farið heim til Frakklands frá Chelsea en PSG og Lyon hafa verið orðuð við leikmanninn að undanförnu. Chelsea vil ekki selja hann á undir sextán milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner