Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 09. júlí 2020 14:30
Magnús Már Einarsson
Guardiola vill ekki missa Garcia
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, vill halda varnarmanninum Eric Garcia hjá félaginu.

Hinn 19 ára gamli Garcia kom til Manchester City frá Barcelona árið 2018 en hann hefur verið orðaður við Börsunga á nýjan leik.

Garcia hefur spilað þrjá leiki með Manchester City að undanförnu en hann verður samningslaus næsta sumar. Guardiola vonast til að halda honum áfram.

„Við viljum að hann verði áfram," sagði Guardiola.

„Hann veit það, fjölskylda hans veit það og umboðsmaður hans veit það. Ég er vongóður en þetta veltur á honum."
Athugasemdir
banner
banner