Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 10. janúar 2021 15:57
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England: Chelsea saxaði á forskot Man Utd
Mynd: Getty Images
Reading 0 - 5 Chelsea
0-1 Fran Kirby ('16)
0-2 Fran Kirby ('23)
0-3 Fran Kirby ('45)
0-4 Fran Kirby ('53)
0-5 Ji So-Yun ('86)

Enska landsliðskonan Fran Kirby fór á kostum þegar Chelsea burstaði Reading í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Það áttu að fara fram fjórir leikir í deildinni í dag en hinum þremur var frestað vegna kórónuveiruvandamála og meiðsla.

Kirby skoraði fernu fyrir Chelsea í leiknum og Ji So-Yun gerði fimmta markið í ansi öruggum 5-0 sigri Lundúnaliðsins. Þessi sigur er mikilvægur fyrir Chelsea sem fer núna upp í annað sæti deildarinnar, þremur stigum frá toppliði Manchester United með leik til góða.

María Þórisdóttir, dóttir Þóris Hergeirssonar, þjálfara norska kvennalandsliðsins í handbolta, var ekki með Chelsea í dag.
Athugasemdir
banner
banner