Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
   fös 10. apríl 2026 18:00
Elvar Geir Magnússon
Karl frá í þrjár vikur
Lennart Karl er 18 ára gamall.
Lennart Karl er 18 ára gamall.
Mynd: EPA
Hinn afskaplega hæfileikaríki Lennart Karl verður frá næstu þrjár vikurnar og missir meðal annars af seinni leiknum gegn Real Madrid í Meistaradeildinni.

Þessi 18 ára leikmaður Bayern München meiddist á hægra læri. Karl er einn efnilegasti leikmaður heims en hann hefur skorað níu mörk og átt sjö stoðsendingar í 35 leikjum á tímabilinu.

Bayern á leik gegn St. Pauli um helgina og stjórinn Vincent Kompany var á fréttamannafundi í dag.

Bayern vann 2-1 útisigur á Santiago Bernabeu en stjörnusóknarmaðurinn Harry Kane lék í gegnum óþægindi í ökkla og skoraði í leiknum.

„Harry Kane var fínn efti leikinn, hann spilaði aðeins yfir sársaukaþröskuldinn en það voru engar aukaverkanir daginn eftir. Það er mikilvægast," segir Kompany.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 33 27 5 1 117 35 +82 86
2 Dortmund 33 21 7 5 68 34 +34 70
3 RB Leipzig 33 20 5 8 65 43 +22 65
4 Stuttgart 33 18 7 8 69 47 +22 61
5 Hoffenheim 33 18 7 8 65 48 +17 61
6 Leverkusen 33 17 7 9 67 46 +21 58
7 Freiburg 33 12 8 13 47 56 -9 44
8 Frankfurt 33 11 10 12 59 63 -4 43
9 Augsburg 33 12 7 14 45 57 -12 43
10 Mainz 33 9 10 14 42 53 -11 37
11 Hamburger 33 9 10 14 39 53 -14 37
12 Union Berlin 33 9 9 15 40 58 -18 36
13 Gladbach 33 8 11 14 38 53 -15 35
14 Köln 33 7 11 15 48 58 -10 32
15 Werder 33 8 8 17 37 58 -21 32
16 Wolfsburg 33 6 8 19 42 68 -26 26
17 Heidenheim 33 6 8 19 41 70 -29 26
18 St. Pauli 33 6 8 19 28 57 -29 26
Slapp
banner