Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
   fös 10. apríl 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland um helgina - Tekst Hoffenheim að snúa þessu við?
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Augsburg og Hoffenheim koma þýsku helginni af stað með leik sínum í kvöld.

Gestirnir frá Hoffenheim þurfa á sigri að halda í baráttunni um meistaradeildarsæti á meðan Augsburg siglir lygnan sjó um miðja deild.

Hoffenheim er aðeins þremur stigum frá Meistaradeildinni þegar sex umferðir eru eftir. Liðið er aðeins búið að krækja að vinna einn af síðustu sjö leikjum sínum í öllum keppnum og missir af meistaradeildarsætinu ef ekki tekst að snúa slæmu gengi við sem allra fyrst.

Borussia Dortmund mætir Bayer Leverkusen í stórleik á morgun áður en Þýskalandsmeistarar FC Bayern geta farið langleiðina með að verja titilinn sinn þegar þeir heimsækja fallbaráttulið St. Pauli til Hamborgar.

Föstudagur
18:30 Augsburg - Hoffenheim

Laugardagur
13:30 Heidenheim - Union Berlin
13:30 Wolfsburg - Eintracht Frankfurt
13:30 Dortmund - Leverkusen
13:30 RB Leipzig - Gladbach
16:30 St. Pauli - Bayern

Sunnudagur
13:30 Köln - Werder Bremen
15:30 Stuttgart - Hamburger
17:30 Mainz - Freiburg
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 34 28 5 1 122 36 +86 89
2 Dortmund 34 22 7 5 70 34 +36 73
3 RB Leipzig 34 20 5 9 66 47 +19 65
4 Stuttgart 34 18 8 8 71 49 +22 62
5 Hoffenheim 34 18 7 9 65 52 +13 61
6 Leverkusen 34 17 8 9 68 47 +21 59
7 Freiburg 34 13 8 13 51 57 -6 47
8 Frankfurt 34 11 11 12 61 65 -4 44
9 Augsburg 34 12 7 15 45 61 -16 43
10 Mainz 34 10 10 14 44 53 -9 40
11 Union Berlin 34 10 9 15 44 58 -14 39
12 Gladbach 34 9 11 14 42 53 -11 38
13 Hamburger 34 9 11 14 40 54 -14 38
14 Köln 34 7 11 16 49 63 -14 32
15 Werder 34 8 8 18 37 60 -23 32
16 Wolfsburg 34 7 8 19 45 69 -24 29
17 Heidenheim 34 6 8 20 41 72 -31 26
18 St. Pauli 34 6 8 20 29 60 -31 26
Slapp
banner