Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
banner
   sun 10. desember 2023 06:30
Hafliði Breiðfjörð
Myndaveisla frá leik ÍR og Leiknis
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
ÍR og Leiknir mættust í árlegum minningarleik um Hlyn Þór Sigurðsson í Breiðholtinu í gær. Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir var á leiknum og tók þessar myndir.

Hlynur Þór var 18 ára gamall þegar hann varð bráðkvaddur þann 25. nóvember 2009 á æfingu hjá ÍR, en hann iðkaði bæði fótbolta hjá félaginu ásamt því að þjálfa yngri iðkendur og gegna ýmsum sjálfboðastörfum innan félagsins. Félögin mætast árlega í desember mánuði til að minnast hans.

Einnig minnum við á minningarsjóð Hlyns sem Aðalheiður og Siggi, foreldrar Hlyns, hafa nýtt til góðra verka hjá báðum félögum.

Tekið er við frjálsum framlögum í sjóðinn:
kt: 411209-0160
rn: 115-05-60550

Athugasemdir
banner
banner
banner