Liverpool vill Barcola - Sane kominn til Tyrklands - Villa, Newcastle og Tottenham hafa áhuga á Sancho
   mið 11. júní 2025 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England tapaði í fyrsta sinn gegn Afríkuþjóð - „Örvæntum ekki"
Mynd: EPA
England tapaði gegn Senegal í æfingaleik í gær 3-1. Þetta var í fyrsta sinn sem enska landsliðið tapar gegn Afríkuþjóð.

Harry Kane náði forystunni fyrir England en Senegal komst yfir með mörkum frá Ismaila Sarr og Habib Diarra. Jude Bellingham skoraði en markið var dæmt af þar sem boltinn fór í höndina á Levi Colwill, Englandingar voru hins vegar ekki sáttir með dóminn.

Það var síðan Cheikh Sabaly sem innsiglaði sigurinn.

„Þetta var ekki nógu gott. Við töpuðum einvígum, við vorum ekki nógu ákafir. Við örvæntum ekki en viðvitum að við verðum að gera betur. Það eru nýir leikmenn að koma inn sem hafa ekki reynslu í landsliðsbotla. Það eru samt engar afsakanir, við verðum að finna leiðir og það fljótt," sagði Harry Kane eftir leikinn.
Athugasemdir
banner
banner