Úrslitaleikur Evrópumótsins fer fram í kvöld. Það styttist óðum í leikinn, rúmir þrír tímar í hann þegar þessi frétt er skrifuð.
Þetta Evrópumót er búið að vera gríðarlega skemmtilegt en því miður klárast það í kvöld.
Þetta Evrópumót er búið að vera gríðarlega skemmtilegt en því miður klárast það í kvöld.
Íþróttafréttamaðurinn Tómas Þór Þórðarson valdi úrvalslið keppninnar í útvarpsþættinum Fótbolta.net í gær.
Hér að neðan má sjá hvaða leikmenn eru í úrvalsliðinu og einnig er hægt að hlusta á útvarpsþáttinn í heild sinni.
Úrslitaleikurinn hefst klukkan 19:00; þar mætast England og Ítalía auðvitað. Fótbolti.net mun fjalla vel um leikinn í allt kvöld.
Sjá einnig:
Barist um gullið í kvöld - Sameiginlegt lið Englands og Ítalíu
Athugasemdir