Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 11. september 2022 18:15
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta deild kvenna: Stjörnunni mistókst að fara uppfyrir Blika
Miranda Nild
Miranda Nild
Mynd: Hrefna Morthens

Selfoss 1 - 1 Stjarnan
1-0 Miranda Nild ('18)
1-1 Gyða Kristín Gunnarsdóttir ('38)

Fimmtánda umferð Bestu deildar kvenna hófst í kvöld með einum leik. Selfoss fékk Stjörnuna í heimsókn.


Bæði lið fengu tækifæri til að hífa sig upp töfluna en Stjarnan þurfti sigur til að komast í 2. sætið upp fyrir Breiðablik. Selfoss nægði jafntefli til að fara upp í 5. sætið upp fyrir ÍBV.

Heimakonur byrjuðu betur en Miranda Nild kom boltanum í autt markið eftir tæplega tuttugu mínútna leik. Gyða Kristín Gunnarsdóttir jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiks eftir mistök í vörn Selfyssinga.

Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir fékk tækifæri undir lok leiksins að tryggja Stjörnunni stigin þrjú en TIffany Sompao varði glæsilega í marki Selfyssinga og tryggði þeim um leið eitt stig.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner