Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 12. október 2019 11:01
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Van der Sar staðfestir að hugurinn leiti til United
Mynd: Getty Images
Fyrrum markvörður Manchester United, Edwin van der Sar, hefur staðfest að hann langi til að snúa aftur á Old Trafford. United leitar að sínum fyrsta yfirmanni knattspyrnumála og hefur nafn van der Sar oft verið nefnt í því samhengi.

„Fyrir utan fjölskylduna og allt tengt henni elska ég tvo hluti í þessu lífi," sagði van der Sar við Planet Futbol.

„Það eru Ajax og Manchester United, þar sem ég endaði ferilinn. Auðvitað hef ég áhuga á stöðunni hjá þeim. Ég þarf samt að vera hér (hjá Ajax) lengur og þroskast meira í mínu starfi og svo sjáum við hvað gerist í framtíðinni. United er frábært félag með marga stuðningsmenn út um allan heim. Allir vilja spila fyrir félagið og allir, þegar tíminn er réttur, vilja vinna fyrir félagið."

Van der Sar er um þessar mundir forstjóri hjá Ajax ásamt Marc Overmars, fyrrum leikmanni Arsenal.
Athugasemdir
banner
banner