Baldvin Berndsen var keyptur til ÍA fyrir síðasta tímabil frá uppeldisfélaginu Fjölni. Miðvörðurinn kom við sögu í 19 leikjum í Bestu deildinni í fyrra, hans fyrstu leikir í efstu deild, og skoraði tvö mörk. Annað þeirra var algjört draumamark á Greifavellinum á Akureyri
Á síðasta ári lék hann líka sína fyrstu leiki fyrir yngri landsliðin, alls fjóra leiki með U21. Í dag sýnir Baldvin á sér hina hliðina.
Á síðasta ári lék hann líka sína fyrstu leiki fyrir yngri landsliðin, alls fjóra leiki með U21. Í dag sýnir Baldvin á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Baldvin Þór Berndsen
Gælunafn: Baddi eða Balli hefur verið það nýjasta upp á skaga
Aldur: 22 ára
Hjúskaparstaða: Föstu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Það var með Vængjum Júpíters árið 2021, 7-1 sigur á Móti Afríku. Þeir mættu bara beint í leikinn án þess að hita upp, það var stórfurðulegt.
Uppáhalds drykkur: Ískaldur Collab.
Uppáhalds matsölustaður: Saffran klikkar einhvernveginn aldrei.
Uppáhalds tölvuleikur: Fifa er klassískt
Áttu hlutabréf eða rafmynt: já maður er eitthvað með puttana í þessu
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Power, væri til í aðra seríu af þeim.
Uppáhalds tónlistarmaður: Aron Can og Kristmundur Axel, G town stuffið.
Uppáhalds hlaðvarp: Fm95blö.
Uppáhalds samfélagsmiðill: Instagram
Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: Fótbolti.net
Fyndnasti Íslendingurinn: Steindi Jr
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Sending þín bíður á pósthúsi, takkaskórnir að lenda.
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Fylki
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Aron Sig er helvíti seigur í bolta, enda uppalinn í Fjölni.
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Margir góðir
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Hinrik Harðarson, alltaf með einhvern kjaft í yngri flokkunum.
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Ætli það sé ekki Pabbi. Hefur líklega ekki misst af fótbolta leik hjá mér.
Sætasti sigurinn: Þeir eru nokkrir, það var léttir að vinna ÍBV í fyrra og vera kominn með annan fótinn í að tryggja sætið í deildinni.
Mestu vonbrigðin: Þegar við fórum ekki upp með Fjölni 2024.
Uppáhalds lið í enska: Liverpool
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Ætli ég tæki ekki Halldór Snær markmann, helvíti gott chemistry á milli okkar.
Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Gabríel Gunnarsson er alvöru baller.
Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Jóhannes Vall er með þeim myndarlegri.
Fallegasta fótboltakonan á Íslandi:
Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Messi.
Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Væri til í að sjá hvernig það væri ef tíminn myndi stoppast þegar boltinn er ekki í leik.
Uppáhalds staður á Íslandi: Geldinganes í Grafarvogi er algjör paradís á sumrin.
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Þegar ég þurfti að fara í markið eftir að Halldór Snær fékk rautt. Viðurkenni að púlsinn hækkaði aðeins á milli stanganna.
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Nei ekkert svoleiðis.
Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Hef gaman að pílunni um jólin.
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike Tiempo.
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Stærðfræði var ekki mitt fag.
Vandræðalegasta augnablik: Þegar ég mætti seinn í fyrsta deildarleikinn minn hjá ÍA í fyrra.
Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Myndi bjóða Steinari Þorsteins, Rúnar Má og Dean Martin. Dæla einhverju geðveiku kjöti ofan í þá.
Bestur/best í klefanum og af hverju: Böddi er að koma sterkur inn, ekki leiðinlegt að hafa hann hliðina sér í klefanum, topp náungi!
Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Myndi senda Erik í Love Island, sá hatar ekki stelpur.
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Varð Íslandsmeistari í skák með strákunum.
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Rúnar Már, hélt hann væri þessi leiðinlegi fyrirliði, er síðan algjör kóngur.
Hverju laugstu síðast: Laug að strákunum að ég kæmist ekki í sund, nennti bara alls ekki.
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: upphitun hjá Dean Martin getur verið langdregin.
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Sem Liverpool maður myndi ég spyrja Salah hvernig hann fór að því að vera besti leikmaður heims í vera svo allt í einu ósýnilegur í hverjum einasta leik.
Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Hvet alla til að mæta á völlinn og styðja okkur. Áfram ÍA
Athugasemdir



