Mikið Newcastle slúður - Endurkoma til Chelsea? - Rodri til Real - Torres á Old Trafford
   þri 31. mars 2026 13:00
Kári Snorrason
Saka Ítalíu um að hafa sent dulbúinn njósnara
Bosnía vann Wales í undanúrslitum umspilsins.
Bosnía vann Wales í undanúrslitum umspilsins.
Mynd: EPA
Bosnískir fjölmiðlar hafa sakað Ítalíu um að senda dulbúinn njósnara til að fylgjast með æfingu bosníska landsliðsins fyrir úrslitaleik þjóðanna í umspili um sæti á komandi heimsmeistaramóti.

Leikurinn fer fram í Zenica í Bosníu klukkan 18:45 í kvöld.

Ásakanirnar virtust þó ekki eiga stoð undir sér. Umræddur maður reyndist vera ítalskur hermaður, staðsettur í Bosníu sem hluti af friðargæslusveit Evrópusambandsins.

Hann hafði verið að mynda æfingu liðsins eftir að fjölmiðlatíma lauk en yfirvöld sem ræddu við manninn staðfestu að um tilviljun hefði verið að ræða.


Slapp
Athugasemdir
banner
banner