Mikið Newcastle slúður - Endurkoma til Chelsea? - Rodri til Real - Torres á Old Trafford
   þri 31. mars 2026 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Töluvert verið rætt og ritað um okkur"
Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA.
Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA hefur styrkt sig vel í vetur. Gísli Eyjólfsson er á meðal þeirra leikmanna sem hafa samið við félagið.
ÍA hefur styrkt sig vel í vetur. Gísli Eyjólfsson er á meðal þeirra leikmanna sem hafa samið við félagið.
Mynd: ÍA
Skagamönnum er spáð fjórða sæti.
Skagamönnum er spáð fjórða sæti.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég veit ekki hvað mér á að finnast um það, hef svosem held ég enga skoðun á því," segir Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, um spá Fótbolta.net fyrir komandi tímabil. ÍA er spáð fjórða sæti Bestu deildarinnar.

„Það hafa verið töluverðar breytingar hjá okkur í vetur, leikmenn að fara og leikmenn að koma, við höfum fengið til okkar góða leikmenn og töluvert verið rætt og ritað um okkur."

Nýju leikmennirnir komið vel inn í þetta
Eins og Lárus nefnir þá hefur verið mikið rætt og ritað um Skagamenn þar sem þeir hafa heldur betur styrkt sig vel, aðallega þá með þremur leikmönnum sem eiga feril í atvinnumennsku og eiga að geta talist með betri leikmönnum deildarinnar ef allt er eðlilegt.

„Undirbúningstímabilið hefur gengið bara nokkuð vel, höfum að vísu aldrei náð að hafa allan hópinn saman í leik af ýmsum ástæðum, en það er sjálfsagt sama sagan hjá flestum ef ekki öllum liðum. En heilt yfir þá er ég bara sáttur við undirbúningstímabilið," segir Lárus.

„Nýju leikmenninir eru að koma vel inn í þetta og verið tiltölulega litið af meiðslum. Ef ég á að finna eitthvað til að kvarta yfir þá hefði ég viljað að Erik (Tobias Sandberg) væri kominn lengra, hann var að koma sterkur til baka eftir löng og erfið meiðsli en þá eins og oft gerist þá koma önnur meiðsli inn í og eins og staðan er núna þá eru einhverjar vikur í hann."

„Ég á ekki von á frekari liðstyrk þó veit ég að það er vilji upp á Skaga fyrir frekari styrkingu ef réttu leikmennirnir losna," segir Lárus.

Við stefnum hátt
Síðasta tímabil var mikið niður og mikið upp. Liðið var neðst í deildinni þegar Lárus Orri tók við um mitt sumar en endaði á því að bjarga sér frekar örugglega.

„Lærdómsríkt fyrir allt félagið," segir þjálfari Skagamanna um síðasta tímabil en liðið stefnir hátt í sumar.

„Við stefnum hátt, en eins og ég sagði þá var síðasta tímabil lærdómsríkt og það er mjög stutt á millli þess hreinlega að vera í fallbaráttu eða Evrópubaráttu."

„Við förum inn í tímabilið með væntingar en vitandi að það er best að taka eitt skref í einu í þessu," segir Lárus en einhver skilaboð til stuðningsmanna að lokum?

„Vonandi sjáum við sem flest á vellinum í sumar og búum til góðar minningar saman."
Slapp
Athugasemdir
banner
banner