Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   þri 31. mars 2026 10:44
Kári Snorrason
Ellefu dregið sig úr landsliðunum - Meiðslakrísa eða varúðarráðstafanir hjá Arteta?
Er Mikel Arteta að setja öryggið á oddinn?
Er Mikel Arteta að setja öryggið á oddinn?
Mynd: EPA
Arsenal er á toppi deildarinnar með níu stiga forystu á Manchester City sem á leik til góða.
Arsenal er á toppi deildarinnar með níu stiga forystu á Manchester City sem á leik til góða.
Mynd: EPA
Ellefu leikmenn Arsenal hafa dregið sig út úr landsliðsverkefnum í núverandi landsleikjaglugga.

Spurning er hvort að liðið glími við mikla meiðslakrísu eða hvort Mikel Arteta sé einfaldlega að grípa til varúðarráðstafana í ljósi stöðunnar í toppbaráttunni, FA-bikarnum og í Meistaradeildinni.

Alls voru 228 leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni valdir í landsliðshópa í glugganum en 23 þeirra hafa síðan dregið sig út. Nær helmingur þeirra sem drógu sig úr hópunum koma úr röðum Arsenal.

William Saliba gaf ekki kost á sér með franska landsliðinu vegna ökklameiðsla. Brasilíumaðurinn Gabriel fylgdi í kjölfarið og dró sig út úr brasilíska hópnum vegna hnémeiðsla.

Fleiri bættust svo á listann, þar á meðal Eberechi Eze, sem glímir við kálfameiðsli, Martin Ödegaard vegna hnémeiðsla og hollenski varnarmaðurinn Jurrien Timber út af nárameiðslum.

Þá dró belgíski sóknarmaðurinn Leandro Trossard sig einnig út vegna meiðsla í mjöðm. Allir misstu þeir af bikarúrslitaleiknum á Wembley.

Eftir að landsliðshópar komu saman bættust svo fimm leikmenn við á listann. Þar má nefna ensku þremenningana Declan Rice og Bukayo Saka sem fengu högg, en ásamt þeim meiddist Noni Madueke á hné í leik gegn Úrúgvæ.

Þá dró Martin Zubimendi sig út úr spænska landsliðshópnum vegna hnémeiðsla og Piero Hincapié úr ekvadoríska landsliðinu af ótilgreindum ástæðum.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
2 Man City 32 20 7 5 65 29 +36 67
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Chelsea 33 13 9 11 53 42 +11 48
7 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
8 Bournemouth 33 11 15 7 50 50 0 48
9 Brighton 33 12 11 10 45 39 +6 47
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 33 12 10 11 36 40 -4 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 32 11 10 11 35 36 -1 43
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 33 9 12 12 42 49 -7 39
16 Nott. Forest 33 9 9 15 36 45 -9 36
17 West Ham 33 8 9 16 40 57 -17 33
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 33 4 8 21 34 67 -33 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner
banner