Mikið Newcastle slúður - Endurkoma til Chelsea? - Rodri til Real - Torres á Old Trafford
   þri 31. mars 2026 10:20
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Jökull: Skil það ef stuðningsmönnum blöskraði
Stjörnumenn steinlágu gegn KR.
Stjörnumenn steinlágu gegn KR.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Besta deildin hefst eftir tíu daga.
Besta deildin hefst eftir tíu daga.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
KR vann afar sannfærandi sigur á Stjörnunni í undanúrslitum Lengjubikarsins fyrir rúmum tveimur vikum síðan. Leikar enduðu 4-0 og er óhætt að segja það að Garðbæingar sáu aldrei til sólar.

Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á laugardaginn síðastliðinn og ræddi um leikinn.

Hann segir meðal annars leikinn hafa verið frávik af því hvernig liðið hefur spilað í vetur en hann segist þó skilja reiði stuðningsmanna.

Að einhverju leyti jákvætt
„Við höfum átt mjög góða tíma eftir þennan leik. Ég held að það sé algjör óþarfi að fara missa sig í einhverjar hæðir eða lægðir eftir einn leik. Ég skil stuðningsmenn sem mættu á leikinn ef að þeim blöskraði. Frammistaðan var mjög döpur og við vorum með lágt orkustig. Þetta var ekki frammistaða sem kveikir í stuðningsmönnum.“

„Ég skil það að stuðningsmennirnir okkar hafi verið ósáttir. Auðvitað fögnum við allri umræðu og að það sé verið að tala um okkur og að fólk búist við miklu af okkur. En þetta var „one off“ leikur hjá okkur. Við höfum ekki áhyggjur af þessum leik.“

„Að einhverju leyti var það ágætt var að sjá hvernig svona leikur, með lágu orkustigi og við passívir, lítur út. Við gíruðum okkur vel upp eftir leikinn og áttum þrjá góða leiki vikuna eftir, einn þar sem við spiluðum á móti Vestra með kornungum strákum.“


Lofar stemningu á Samsung
Stjarnan vann sinn riðil í Lengjubikarnum sannfærandi en tapaði, eins og áður sagði í undanúrslitum. Þá komst liðið jafnframt bæði í úrslit í Bose-mótinu og Þungavigtarmótinu. Jökull er ánægður með stöðuna á hópnum.

„Ég er mjög ánægður með liðið núna. Veturinn hefur gengið virkilega vel. Við höfum alltaf breytt hvernig undirbúningstímabilinu hefur verið háttað en breytingin er mikil núna og það hefur verið mikill stígandi hjá okkur. Ég held að við séum komnir á stað sem við getum verið mjög ánægðir með. Við förum mjög gíraðir inn í mótið með mikið sjálfstraust. Það verður stemning á Samsung-vellinum í sumar, ég er handviss um það,“ sagði Jökull að lokum.
Útvarpsþátturinn - Máni og Jökull heimsækja Tómas
Slapp
Athugasemdir
banner