Fabian Hurzeler, stjóri Brighton, er eftirsóttur en Leverkusen horfir hýru auga til hans. Kasper Hjulmand er stjóri Leverkusen en það er líklegt að hann muni yfirgefa félagið í sumar.
Hurzeler tók við stjórastarfinu hjá Brighton árið 2024 eftir að hafa stýrt St. Pauli. Brighton situr í 10. sæti í úrvalsdeildinni.
Þrátt fyrir áhugann í Þýskalandi mun hann líklega vera áfram hjá Brighton í eitt ár til viðbótar í það minnsta samkvæmt heimildum TalkSPORT.
Eftir 2-1 sigur á Liverpool fyrir landsleikjahléið hefur Hurzeler unnið 35 af 81 leik í öllum keppnum sem stjóri Brighton.
Athugasemdir

